Amber Heard er með fallegasta andlit heims, ef marka má hina ævafornu aðferð sem forn-Grikkir notuðu til þess að mæla fegurð. Instagram-síðan World celebs style birti mynd af Amber þar sem mælingar Grikkja eru strikaðar yfir andlit hennar. Ekki leið á löngu þar til fjöldi annarra miðla höfðu birt myndina af stjörnunni en hefur mikið gengið á í lífi Amber síðustu mánuði. Líkt og sjá má á myndum er mælt hversu langt er á milli augna, hversu stórar varirnar eru og margt fleira. Lítur út fyrir að Amber smellpassi í mót forn-Grikkja.
Ekki er langt síðan stjarnan var dæmd til þess að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum, Johnny Depp, 8,3 milljón dollara í bætur.
Sást til stjörnunnar versla sér fatnað í TJ – Maxx á dögunum en selur verslunin merkjavörur á lágu verði.