Leikarinn og söngvarinn Júlí Heiðar Halldórsson og leikkonan og Reykjavíkurdóttirin Þórdís Björk Þorfinnsdóttir voru að trúlofa sig.
Stóru fréttina greina þau frá á Instagram-síðu Þórdísar en þar kemur fram að þau hafi trúlofast í uppáhalds byggingunni sinni, samkomuhúsinu á Akureyri. Deila þau tveimur krúttlegum ljósmyndum af þeim upp á sviði en á annarri þeirra sjást þau kyssast á sviðinu.
Samkvæmt Fréttablaðinu hefur parið verið saman í rúmt ár en þau hafa þekkst um margra ára skeið en þau voru saman í bekk á leiklistarbraut Listaháskóla Íslands. Þá léku þau saman í leikritinu Vorið vaknar sem Leikfélag Akureyrar sýndi árið 2020. Eiga þau bæði barn úr fyrra sambandi.
Mannlíf óskar parinu til hamingju með trúlofunina.
View this post on Instagram