Tónlistarkonan Þórunn Antonía Magnúsdóttir segist vera alveg við það bugast en ónæmiskerfi hennar hefur veikst svo mjög vegna heilsuspillandi myglu í húsnæði sem hún leigði. Hún hefur sent út neyðarkall á Facebook þar sem hún vonar eftir jólakraftaverki:
„Ég er svona u.þ.b við það að bugast. en held þó í von um að jólakraftaverkin gerist. Hér má sjá andlit mitt eftir að það að búa í heilsuspillandi mygla hefur veikt ónæmiskerfið mitt það mikið að þetta er útkoman er ég kemst i tæri við myglu eða hreinlega toxic ilmefni, mýkingarefnu, sterk þvotta efni osfv sem ónæmiskerfið flokkar á sama hátt meðan maður nær bata,“ segir Þórunn og bætir vð:
„Fjölefnaóþol svokallað. Hressandi i skammdeginu. En er einhver með langtimaleigu íbúð helst nálægt Vesturbæ með 3 svefnherbergjum svo ég breytist ekki varanlega i fíla manninn?“
Söngkonan góðkunna er orðin heimilislaus og sendi út hjálparbeiðni til netverja um húsaskjól. Í síðasta mánuði þurfti hún, ásamt börnum sínum, að yfirgefa heimili sitt eftir að mygla uppgötvaðist þar. Hún er því í hópi fjölmargra sem glíma við þann ófögnuð sem mygla í húsnæði reynist vera.
Þórunn óskar eftir íbúð á verði sem falli að fjárhag einstæðrar móður og vill skoða allt nema þar sem raki eða mygla koma við sögu.