- Auglýsing -
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, lögfræðingur, eignuðust sitt þriðja barn þann 24. apríl síðastliðinn. Var það drengur sem kom í heiminn í Stokkhólmi í Svíþjóð en fyrir á parið tvær stúlkur, þær Helgu Viktoríu og Emilíu Sól.
Drengurinn fékk nafnið Kristján Karl. Þykir líklegt að hann hafi verið nefndur í höfuðið á báðum öfunum, sem eru eflaust himinlifandi yfir nýjum nafna í Svíþjóð. Við óskum fjölskyldunni innilega til hamingju með drenginn.