- Auglýsing -
Samkvæmt árlegri skýrslu CareerCast, um mest streituvaldandi störfin, eru hermenn efstir á lista. Listinn breytist nokkuð á milli ára að frátöldum þremur efstu sætunum. Í öðru sæti er starf slökkviliðsmanna og í því þriðja flugmanna. Samkvæmt Kyle Kensing, ritsjóra CareerCast, segir hann fyrirtækið notast við margskonar aðferðir þegar streitustig er mælt. Útkoman kom honum ekki á óvart en hér að neðan eru þau tíu störf sem eru hvað mest streituvaldandi.
1. Hermenn
2. Slökkviliðsmaður
3. Flugmaður
4. Lögregluþjónn
5. Útvarpsmaður
6. Viðburðarstjóri
7. Blaðamaður
8. Almannatengill
9. Yfirmaður fyrirtækja
10. Leigubílstjóri