Tjaldurinn Tryggvi og spússa hans, Tryggvína, eru mætt í Ármúlann í Reykjavík. Hjúin hafa gert sér óðal á þaki Ísólar á Ármúla 17, síðast liðna þrjá áratugi.
Vorboðinn ljúfi í Ármúlanum, Tryggvi og Tryggvína mættu í dag, þriðja apríl í sitt gamla óðal en þau eru aðeins seinna á ferðinni en síðast en í fyrra komu þau 31. mars. Starfsmenn Mannlífs og fyrirtækja í götunni hrukku upp eftir hádegi við skaðræðishávaða sem reyndust vera hin eldhressu hjú, Tryggvi og Tryggvína en Mannlíf hefur síðustu ár flutt fréttir af ævintýrum þeirra. Spígsporuðu þau á gluggasyllum fyrir utan skrifstofur Mannlífs með tilheyrandi látum, öllum til gleði og ánægju, auðvitað.
Frægt er þegar Tryggvi gerði sér lítið fyrir og reyndi að komast inn í kvenfataverslun í Ármúla 15 en þurfti frá að hverfa vegna hræðslu við mannfólkið. Þá náðist getnaður þeirra á ljósmynd einn morguninn árið 2022 en þá eignuðust þau þrjá unga sem hlutu nöfnin Ripp, Rapp og Rupp en sá síðast nefndi náði sér aldrei á strik og var sá eini sem ekki komst á legg. Spennandi verður að fylgjast með tjöldunum þetta vorið og mun Mannlíf reyna eftir bestu getu að flytja fréttir af þeim, líkt og síðustu ár.