Rokkhundurinn Tommy Lee kom aðdáendum sínum mis skemmtilega á óvart með ljósmynd af sér á sprellanum.
Trommari Mötley Crüe, hinn 59 ára Tommy Lee er allt annað en feiminn við myndavélar. Það sannaði hann enn og aftur seint síðustu nótt, með óvæntri nektarmynd á Instagram en þar fylgja honum 1,5 milljónir manna. Við ljósmyndina skrifaði rokkarinn „Ooooopppsss.“
Eyddi hann færslunni stuttu síðar og setti myndabrandara í staðinn. Þar stóð nakinn maður á móti fíl sem spyr manninn „Hvernig geturðu andað með svona litlum rana?“
Aðdáendur Tommy eru þó ekki tilbúnir að láta eins og ekkert hefði gerst enda margir brugðið. Hafa þeir margir skrifað athugasemdir við myndabrandarann. Langflestir voru með einföld skilaboð til hans: „Tommy Lee, farðu að sofa!“
Gunnar nokkur skrifaði „Og hvað, ætlum við bara að láta eins og ekkert hefði gerst?“
Kona nokkur virtist hafa húmor fyrir þessu typpaflippi hans: „Þú ert aldeilis í flippstuði í kvöld!“
Hér ber að líta ljósmyndina „smekklegu“