- Auglýsing -
Á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember, kl.17-19, verður fagnað útgáfu Leikritasafns Ólafs Hauks Símonarsonar í Kristalsal Þjóðleikhússins. Þetta mikla leikritasafn samanstendur af átján verkum sem hafa verið sýnd á ýmsum leiksviðum bæði hér heima og erlendis en koma nú út í einni bók sem gefin er út í takmörkuðu upplagi.
Skemmtiatriði í útgáfuhófinu verða ekki af lakara taginu, en Jón Ólafsson, Hildur Vala Einarsdóttir og K.K. verða með tónlistaratriði og þau Unnur Ösp Stefánsdóttir og Jóhann Sigurðarson með leiklestur.
Hér má sjá viðburðinn.