Áhrifavaldurinn Vala Grand nýtur sín í sólinni á Tenerife þessa dagana og hefur hún verið iðin við að birta frá því myndir og myndbönd í Insta-Story. Vala lagði af stað til eyjunnar fögru í gær en að hennar sögn dvelur hún á hóteli ætluðu fjölskyldum.
,,Viljiði heyra svolítið ógeðslega fyndið. Ég er að fá illa auga hérna af margar kellingar hérna af því að þetta er svona fjölskylduhótel. Það eru engir single daddys hérna sko. Það eru allir harðgiftir hérna með börnin sín, ég er bara eitthvað hérna 😉 ,“ segir Vala en ekki leið á löngu þar til hún hitti einstæðan föður.
,,Single daddy allert!“ sagði Vala sem hélt áfram að spjalla við hann. ,,Þessi er alveg pottþétt að reyna við mig á fullu sko,“ sagði Vala og hló. Í kjölfarið sýndi áhrifavaldurinn frá hótelinu og virðist hún hin ánægðasta með aðstöðuna. Síðar um kvöldið fór hún niður á bar hótelsins og skemmti sér vel. ,,Heyrðu, single daddy vildi fá að hitta mig niðri á barnum,“ sagði hún hin gæsilegasta meðan hún mátaði föt. Ljóst er að það verður gaman að fylgjast með Völu á Tenerife næstu daga.