Þriðjudagur 19. nóvember, 2024
-5.1 C
Reykjavik

Veitur og Þróttur í samstarf: „Við þurftum að setja upp síuskáp“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það getur verið gott að byggja um hverfisanda og virðist fyrirtækið Veitur vera sammála því en fyrirtækið fór fyrir stuttu í örlítið samstarf við íþróttafélagið Þrótt í Reykjavík þegar fyrirtækið þurfti að setja upp nýjan síuskáp á Laugarnesinu.

„Í Laugarnesinu höfum við verið koma upp hreinsibúnaði fyrir heita vatnið svo það renni óhindrað og hreint í kranana á heimilunum. Það þýddi að við þurftum að setja upp síuskáp á gangstéttina fyrir framan Kaffi Laugalæk,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Í góðri samvinnu við kaffihúsið ákváðum við að fanga stemningu hverfisins og klæða skápinn í einkennisbúning Þróttar, með góðfúslegu leyfi frá íþróttafélaginu.

Þetta hefur vakið lukku og minnir á að Veitur eru hluti af daglegu lífi íbúanna með því að tryggja aðgengi að rafmagni, hita, vatni og fráveitu til framtíðar!“

Síuskápurinn var settur upp til að fanga óhreinindi áður en þau koma til íbúa og eru sögn Veita eðlilegur fylgifiskur hitaveitunnar.

„Heita vatninu frá lághitasvæðum fylgja náttúruleg óhreinindi og þau eru eðlilegur fylgifiskur hitaveitunnar. Óhreinindin eru ástæðan fyrir því að það eru síur við inntak hitaveitu í öllum húsum til að tryggja að heita vatnið renni óhindrað í kranana. Á einstaka svæðum hafa síurnar ekki undan og þarfnast reglulegrar hreinsunar. Til að fanga óhreinindin áður en þau berast heim til íbúa settu Veitur upp búnað á dreifilagnir í Laugarnesinu í vetur.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -