Frumsýning á kvikmyndinni Marry Me var haldin í Los Angeles á þriðjudagskvöldið síðasta en fer Jennifer Lopez með eitt aðalhlutverka í myndinni.
Jennifer Lopez(52) og Ben Affleck(49) byrjuðu aftur saman á síðasta ári en átti þau í ástarsambandi árið 2000. Mætti parið á frumsýninguna í sínu fínasta pússi en kjóll söngkonunnar vakti svo sannarlega athygli.
Samkvæmt erlendum slúðurmiðlum er kjóll Jennifer sagður vera „vísbending“ fyrir Ben en hvítar blúndur minna óneitanlega á brúðarkjól.
Ekki liggur fyrir hvort parið ætli að láta pússa sig saman en margir telja kjólinn aðeins átt að passa kvikmyndinni sem heitir einmitt – „Marry Me“.