Vítalía Lazareva er tilbúin fyrir 2023 eftir krefjandi ár.
Matvælafræðineminn og áhrifavaldurinn Vítalía Lazareva segist tilbúin fyrir nýja árið eftir krefjandi tíma, í nýrri Instagram-færslu. Mikið hefur mætt á henni frá því að hún steig fram á sjónarsviðið í byrjun árs 2022 en óþarfi er að fara nánar út í þá sálma.
Nýja færslan barst á gamlársdag en þar birti hún ljósmynd af sér við jólaskreyttan nordmannsþin. Eftirfarandi texta skrifaði Vítalía:
„Tilbúin í næsta ár og allt sem það hefur uppá að bjóða,
Krefjandi ár að baki og oft sem batteríin voru tóm, en til þess að læra þá verðum við að lifa.
Þakklát fyrir allt og þakklát fyrir áskoranir sem leggjast á mig sama hversu brattar þær eru.“