- Auglýsing -
Snoop Dogg hélt upp á 52 ára afmælið sitt.
Það jafnast ekkert á við að eiga góða vini segir spakmælið. Leikararnir Will Ferrell og John C. Reilly komu fram á góðgerðartónleikum um helgina og sungu nokkur lög. Óvæntur gestur var með þeim á tónleikunum en það var góðvinur þeirra hann Snoop Dogg.
Leikararnir sögðu áhorfendum frá því að Snoop Dogg ætti afmæli og fögnuðu áhorfendur rapparanum vel. Þá fór Will Ferrell og náði í rosastóra köku fyrir rapparann og í framhaldinu söng hann afmælislagið ásamt John C. Reilly og áhorfendum fyrir Snoop, sem var sýnilega glaður með sönginn.
View this post on Instagram