Uppljóstranir Moggans um meint kvenhatur Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingar, eru áfall fyrir Kristrúnu Frostadóttur formann. Þórður Snær gengst við kvenfyrirlitningu undir nafnleysi. Hann laug á sínum tíma opinberlega og þrætti fyrir að hafa ýjað að því að Rannveig Rist álforstjóri væri þroskaheft en játaði í Spursmáli Moggans.
Þórður er þriðji maður á lista Samfylkingar í Reykjavík suður þar sem Kristrún er leiðtogi. Í öðru sæti er sá umdeildi Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri. Nú virðist komið á daginn að báðir eru þeir dragbítar á gengi flokksins og eiga hugsanlega eftir að verða dýrkeyptir þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Það er krísa í flokknum.
Þórður baðst í nótt afsökunar á því að hafa hrakyrt konur og segist vera orðinn betri maður. Hann er á brún hengiflugsins um að þurfa að segja sig frá framboðinu. Hann fær mikinn stuðning við iðrunarfærslu sína á Facebook og Mogganum er úthúðað fyrir að fletta ofan af svívirðunni.
Vandinn er aftur á móti sá að syndir ritstjórans fyrrverandi gætu verið fleiri og hann þarf nú að treysta á vini sína á fjölmiðlum um að mynda um sig skjaldborg. Og það er jú þekkt að fjölmiðlar standa sumir hverjir saman á ögurstundu …