Undarleg staða er uppi innan Þjóðkirkjunnar á lokametrunum á ferli Agnesar Sigurðardóttur biskups. Nýr biskup mun taka við í sumar þegar Agnes hverfur úr embætti. Nýverið samþykkti kirkjuþing að biskup færi ekki lengur með fjármál Þjóðkirkjunnar og annaðist hér eftir aðeins þau málefni sem snúa að boðun kirkjunnar. Vígslubiskupar munu taka við þeim málum sem Agnes hefur verið gerð óvirk í starfsmannamálum og hvað varðar fjármál. Hún á að hafa tilsjón með kristnihaldi, kenningu kirkjunnar og þjónustu hennar í landinu ásamt því að gæta einingar kirkjunnar Þetta gerist í framhaldi af ýmsum hneyklsimálum, umboðsleysi og átökum sem gert hafa að verkum að Agnes er einn umdeildasti biskup sögunnar. Séra Skírnir Svavarsson hefur í fjölmörgum greinum lýst einelti biskups á hendur sér og hvernig hann hafi verinn hrakinn úr embætti.
Óljóst er hver tekur við af Agnesi þegar hún sest í helgan stein. Nokkur fjöldi presta hefur sóst eftir starfinu sem gefur ágætlega í aðra hönd. Þeirra á meðal er Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti og samherji Agnesar. Hann er nokkuð við aldur, en leggur áherslu á að kosning hans yrði millileikur á meðan fólk kemur sér niður á biskup til framtíðar. Búist er við hörkubaráttu um embættið …