Ólga er innan prestastéttarinnar vegna stjórnunarhátta Agnesar M. Sigurðardóttur biskups. Nýr þjóðarpúls Gallup um traust landsmanna til Þjóðkirkjunnar, mælir lágt og hefur valdið vonbrigðum. Hermt er að biskup sé viðskotaillur þessa dagana og þá ekki síst vegna þess að sumir prestar túlka þetta sem svo að lítið traust á Þjóðkirkjunni haldist í hendur við lítið traust á Agnesi biskupi og hennar nánasta samstarfsfólki. Lítil ánægja virðist einnig vera með vígslubiskupana tvo sem þó er hið ágætasta fólk. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, lét hafa eftir sér að lítið traust á Þjóðkirkjunni stafaði einungis á vanþekkingu almennings á störfum hennar. Þá segja nokkrir prestar að Kristján Björnsson vígslubiskup í Skálholti hefur það orð á sér að vera tækifærissinni …