Ásakanir á hendur Þorsteini Má Baldvinssyni um mútur, lögbrot og siðleysi hrannast upp í Namibíu, Færeyjum og á Íslandi. Færeyskur sjónvarpsþáttur leiddi fram hvernig svindlað var á Namibíumönnum með því að lögskrá íslenska sjómenn á skipum þaðan í Færeyjum og sleppa við skatta. Þrátt fyrir eldana eru forsvarsmenn Samherja hinir bröttustu og nota heimasíðu fyrirtækisins aðallega til að ráðast á Helga Seljan og aðra hjá Ríkisútvarpinu sem hafa verið duglegir við að halda fram spillingu fyrirtækisins.
En það taka ekki allir þátt í gleðinni yfir uppljóstrunum varðandi Samherja. Hjörleifur Hallgríms, eftirlaunamaður á Akureyri, er með grein í Mogganum í dag þar sem hann fer mikinn vegna þess að Ríkisútvarpið mætti ekki á bryggjuna á Akureyri þegar nýr Baldvin Þorsteinsson EA lagðist þar að bryggju.
„… En af því að það er Samherji sem á í hlut hunsaði slúðurþyrst lið hjá RÚV; Akureyringarnir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri og Helgi Seljan, algjörlega þessa stórfrétt. Í staðinn „fögnuðu“ þau með frétt frá Færeyjum þar sem þarlent útgerðarfyrirtæki er talið hafa farið að einhverju leyti fram hjá lögum …“