Anna Mjöll Ólafsdóttir, söngkonan góðkunna, á að baki frábæran feril, líkt og móðir hennar Svanhildur Jabobsdóttir. Báðar hafa þær sungið sig inn í hjörtu landsmanna. Anna Mjöll hefur búið í Bandaríkjunum um árabil þar sem söngurinn og tónlistin hefur verið hennar aðalatvinna. En nú kann að verað breyting á því söngkonan er komin með réttindi sem einkaflugmaður. Þetta kom fram í Mannlífsviðtali við Svanhildi, móður hennar, sem hefur flogið með henni yfir Bandaríkin. Þá upplýsti hún að dóttir hennar stefndi á að ná sér í atvinnuflugmannsréttindi og þá væntanlega hasla sér völl í háloftunum.
Svanhildur hefur um áratugaskeið haldið úti Óskastundinni, vikulegum þætti sínum á Rás 1 …