Undarleg uppákoma varð á skemmtistaðnum Kíkío queer í Reykjavík á föstudagskvöldið. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, hafði ílengst inni á salerni staðarins þegar dyraverðir misstu þolinmæðina og báru hana þaðan út. Af þessu hlaust uppnám og mætti lögreglan og handtók þingmanninn. og var handtekin og borin þaðan út. Arndís Anna setti í framhaldinu inn tilkynningu á Facebook þar sem hún þakkaði lögreglu fyrir að hafa handtekið sig af fagmennsku og viðurkennir að hún hafi verið í talsverðu uppnámi. Þá kemur fram að það iljaði henni um hjartarætur að lögreglan hefði brugðist „svo skjótt við útkalli frá hinsegin skemmtistað“. Hún gagnrýnir dyraverðina fyrir óþarflega mikla og niðurlægjandi hörku.
Yfirlýsing Arndísar er furðuleg og svarar litlu um að hvað í ósköpunum hafi gengið á inni á barnum. Sökudólgarnir virðast þannig vera dyraverðirnir fremur en þingmaðurinn eða lögreglan …