Þau visna nú kærleiksblómin innan Pírata. Ekki er langt síðan Atli Þór Fanndal var ráðinn sem einskonar samskiptasjóri þingflokks Pírata. Voru miklar væntingar bundnar við störf hans. Atli hefur víða komið við á ferli sínum og þykir vera í senn slóttugur og klókur í pólitískri refskák. Hann starfaði um tíma með Vinstri- grænum en lagði svo fyrir sig blaðamennsku. Áður en hann hélt til liðs við Pírata var hann framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, samtaka sem ku beita sér gegn spillingu.
Mikill spenningur var hjá Pírötum þegar Atli var ráðinn fyrir tæpum fimm mánuðum. „Við erum ótrúlega spennt að fá Atla aftur til liðs við okkur og njóta krafta hans,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata í tilefni ráðningarinnar. Sjálfur sagði Atli Þór að hann Píratar væru hans náttúrlegi flokkur. Nú er öldin önnur. Atli er hættur og samskipti hans við Pírata eru botnfrosin.
Hermt er að Atli hafi verið í óða önn að skipa sínu fólki í ábyrgðarstöður í flokknum. Þetta hafi ráðandi öflum í flokknum ekki hugnast og honum hafi verið ýtt út. Í samtali við Vísi vildi Atli ekki upplýsa hvort hann ætlaði að kjósa Pírata …