Össur Skarpéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, fer á kostum í viðtali við Moggann þar sem hann fjallar um annan fyrrverandi formann Samfylkingarinnar, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, með fremur óvægnum hætti og sakar hana um auðmannadekur. Þekkt er að Össur og Ingibjörg hafa lengi átt í erjum þrátt fyrir að þau eru svilar og þannig tengd órofa fjölskylduböndum.
„Í Borgarnesræðunni, sem var eins konar hugmyndafræðilegur grunnur að þeim flokki sem Ingibjörg Sólrún vildi leiða, var svo málstaður Bónuss og Kaupþings, raunar fleiri fyrirtækja, tekinn upp gagnvart Davíð (Oddssyni) og út í frá túlkuðu því margir ræðuna þannig að flokknum hefði verið stillt upp þeirra megin á skákborðinu. Í kjölfarið, þegar bankahrunið brast á, og rannsóknarskýrslur röktu orsakir þess meðal annars til háttsemi einstaklinga sem tengdust þessum fyrirtækjum, þá reyndist erfitt fyrir flokkinn að verjast nafngiftinni „hrunflokkur“,“ sagði Össur miskunnarlaus gagnvart aumingja Ingibjörgu sem hefur um árabil setið á friðarstóli en fær nú yfir sig dembu á efri árum.
Frægt var þegar Ingibjörg Sólrún hélt stutta tölu í sextugsafmæli Össurar fyrir 10 árum. Þá benti hún á þau nokkuð augljósu sannindi að fólk velur sé vini en ekki fjölskyldu. Þótti þetta fremur ósmekklegt að Ingibjörgu á þeim tíma í ljósi erfiðra samskipta hennar og afmælisbarnsins …