- Auglýsing -
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, liggur undir ámæli fyrir baktjaldamakk og undirróður til að koma Benedikt Jóhannessyni, stofnanda Viðreisnar, út úr áhrifastöðu í flokknum. Meðferðin á Benedikt þykir til marks um að ekki hafi pólitísk viska eða framsýni ráðið för. Benedikt þykir að vísu vera frekar ferkantaður í samstarfi en stálheiðarlegur og maðurinn að baki flokknum, sálin í hreyfingunni. Nú blasir við Þorgerði Katrínu að flokkurinn er klofinn og eingöngu spurning um það hve margir fylgja Benedikt yfir eyðimörkina og í annan og farsælli flokk …