Á meðal þeirra sem vilja komast í pólitískar álnir er verðlaunablaðamaðurinn Jóhann Páll Jóhannsson,sem vill sæti á lista flokksins í Reykjavík fyrir kosningarnar haustið 2021. Hann er nýráðinn starfsmaður flokksins en vill nú fara alla leið. Jóhann Páll er þjóðþekktur og margverðlaunaður fyrir blaðamennsku sína á DV og seinna á Stundinni. Á Alþingi eru margir sem fundið hafa fyrir vendi hans og vilja örugglega hefna harma sinna. Efsti maður Samfylkingar í Reykjavík er Ólafur Ágúst Ólafsson sem sagði af sér um tíma eftir að hann varð uppvís að því að áreita blaðakonu Kjarnans. Ágúst Ólafur sneri aftur á þing en flýgur lágt og á ekki upp á pallborðið hjá þeim sem vilja standa vörð um réttindi kvenna. Þessi staða gefur Jóhanni Páli möguleika á því að komast í sæti hans. Uppstillinganefnd flokksins á seinasta orðið þar sem prófkjör hugnast ekki ráðandi öflum í flokknum. Búist er við hörðum slag í bakherberbergjum Samfylkingar …