Agnes Sigurðardóttir biskup er í bobba vegna reksturs Þjóðkirkjunnar og framkomu í garð starfsfólks. Kirkjan tapaði hátt í 700 milljónum króna á seinasta ári. Ofan á rekstraróstjórn bætist að biskupinn er gagnrýndur fyrir að koma illa fram við undirmenn og ala á ótta þeirra. Séra Skírnir Garðarsson er einn þeirra sem lögsækja biskup vegna brottreksturs í tvígang. Skírnir krefst hárra báta. Þá var vinsælum starfsmanni á Biskupsstofu með langan starfsaldur sagt upp störfum. Fullyrt er að það hafi verið til að rýma fyrir öðrum og að lögsókn sé þar í uppsiglingu. Jesúmál biskups og Péturs Markan, fulltrúa hans, hefutr valdið mikilli ólgu. Biskupinn lét teikna brjóst á Jesú og setja á hann skegg til að undirstrika kynleysi hans. Þetta fer fyrir brjóst margra. Vaxandi ólga er á meðal presta sem telja biskupinn í flestum skilningi vera vanhæfan til að gegna embætti sínu þannig að sómi sé af …