Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er harðorður í garð fjölmiðla vegna framgöngu þeirra í máli Skæruleiðadeildar Samherja og rannsókn sýslumannsins á Akureyri sem beinist meðal annars að blaðamönnum og því hvort Páli Steingrímssyni, skipstjóra og skæruliða, hafi verið byrluð ólyfjan til að komast yfir síma hans. Skæruliðamálið gengur út þá það að upplýst var um undirróður Þorsteins Más Baldvinssonar og undirmanna hans til að sverta æru Helga Seljan og ofsækja hann og fleiri á svörtum lista Samherja með flestum tiltækum ráðum. Bjarni tekur sér stöðu með skæruliðum og kvartar yfir því að áherslan hafi öll verið út frá hagsmunum hinna grunuðu blaðamanna en ekki á því hverjar sakargiftirnar væru, líkt og venjan væri í sambærilegum fréttum. „Við höfum mátt venjast því í fréttaflutningi af lögreglumálum þegar almennir borgarar eiga í hlut að fjölmiðlar beini sjónum sínum að því hvað hinn grunaði kunni að hafa unnið til saka,“ segir Bjarni í færslu sinni á Facebook.
Bjarni er ekki óvanur að standa í orrahríð vegna aðgerða gegn fjölmiðlum. Hann var á sínum tíma miðjan í lögbannsmáli Stundarinnar þar sem fjölmiðlinum var meinað með beinni aðgerð yfrvalda að birta fréttir af meintum spillingarmálum formannsins í aaðdraganda kosninga. Hann var fáorður um lögbannið á sínum tíma þvert á það sem nú gerist. Það mál og fleiri hafa reynst Bjarna þung í skauti pólitískt og eflaust valdið honum ama …