Miðvikudagur 27. nóvember, 2024
3.2 C
Reykjavik

Bjarni pönkast í Lilju

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lilja Alfreðsdóttir, ráðherra menntamála, hefur náð að reita sjálfstæðismenn til reiði. Þegar hún gagnrýni bankabrall Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra með bréfin í Íslandsbanka og lýsti því að hún hefi varað við aðferðinnni við söluna kallaði hún yfir sig reiði goðanna. Bjarni virðist hafa beðið færis þar til tækifæri kom til að sparka duglega í kollega sinn í Framsókn. Það var þegar Lilja boðaði hækkun á endurgreiðslu vegna framleiðslu kvikmynda á Íslandi í því skyni að laða að stór erlend verkefni.  Bjarni lýsti því Þá yfir að ekki væru fjárheimildir fyrir málinu og virðist ætla að stöðva framhang þess. Þetta er enn eitt dæmi um snögga kólnun á ríkisstjórnarheimilinu. Núningur er þegar á milli ríkisstjórnarflokkanna vegna einlægs áhuga Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á því að vísa hælisleitendum úr landi. Vinstri grænir eru ævareiðir en Katrín Jakobsdóttir reynir varfærnislega að bera klæði á vopnin á meðan fylgi flokksins hrynur. Nú er spurning hvað Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, geri til að bakka upp varaformann sinn. Það er veruleg sprengihætta á stjórnarheimilinu og ráðherrar eiga erfitt með að fóta sig í frelsinu eftir Covid …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -