Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, er nú kominn í örugga höfn sem aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar eftir að hafa farið í gegnum fjölmörg gjaldþrot á undanförnum árum. Talið er að heildarkostnaður við persónulegt gjaldþrot Björns Inga og fyrirtækja hans sé hátt í tveir milljarðar króna. Heimildin birti fyrir nokkru viðskiptasögu Björns Inga þar sem reiknað var út að alls hefðu tapast 1800 milljónir króna á bramboltinu.
Björn Ingi átti erfiða tíma fyrst eftir fall fjölmiðla hans. Hann náði sér á strik í Covid-faraldrinum þegar hann tók upp á því að mæta á blaðamannafundi þríeykisins rómaða og spyrja þar um flest milli himins og jarðar sem Björn Ingi á Viljanum. Talið var að hann stefndi á framboð til Alþingis en persónulegt gjaldþrot hans hefur væntanlega sett strik þann í reikning. Fyrningartími skulda eftir gjaldþrot er tvö ár.
Víst er að Björn Ingi á eftir að nýtast Sigmundi Davíð vel. Hann er annálaður klækjarefur úr stjórnmálunum sem aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, og borgarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það er mörgum léttir að hann hafi loksins fengið vinnu hjá almenningi eftir að hafa farið um svipugöng gjaldþrota og kreppu undanfarin sjö ár. Fjölmargir hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna gjaldþrotanna. Sumir dást að Birni Inga fyrir að standa jafnan upp aftir og halda áfram þrautagöngunni …