Björn Valur Gíslason, fyrrverandi alþingismaður og varaformaður Vinstri grænna, ætlar ekki að sækjast eftir odddvitasætinu í Norðausturkjördæmi sem losnar við brotthvarf Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, sem hefur tilkynnt að hann muni hætta á Alþingi á næsta ári. Björn Valur var þingmaður kjördæmisins áður en hann hætti þingmennsku og sneri sér á ný að skipstjórn á togurum. Hann var kraftmikill á þingi en þótti vera helst til kjaftfor fyrir smekk hinna viðkvæmari í flokknum. Hann stjórnar um þessar mundir frönskum frystitogara í Barentshafi og er ánægður með hlutskipti sitt. Nú virðist Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, alþingismaður í Norðausturkjördæmi, eiga nokkuð greiða leið í oddvitasætið …