Orðrómur
Aðstoðarmaðurinn Borgar Þór Einarsson er sagður vera í startholunum til þess að bjóða sig fram í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Borgar er aðstoðarmaður Guðlaugs þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og lendir í þeirri erfiðu stöðu, ef af framboði verður, að slást um þingsæti við sinn eigin ráðherra sem sjálfur þarf að verjast kjarnakonunum Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Sigríði G. Andersen, alþingismanni og forvera Áslaugar, sem enn glímir við fráhvörf eftir að hafa verið ýtt af ráðherrastóli. Borgar er fóstursonur Geirs Haarde, fyrrverandi formanns, og einskonar prins flokksins í þeim skilningi og hermt er að hann sárlangi á þing. Það vinnur nokkuð gegn honum að hann er mikill skapmaður og sést ekki alltaf fyrir.
Einnig flýgur fyrir að Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds, leiðtogi Sjaálfstæðisflokksins í borgarstjórn hafi áhuga á þingsætum. Vandinn er sá að enginn sitjandi þingmanna flokksins ætlar að hætta og nýjir menn þurfa að vera firnasterkir til að ná árangri. Helsta spennan er talin vera sú hvort konurnar eigi eftir að senda Guðlaug Þór niður listann og taka þannig af honum möguleika á ráðherrasæti …