- Auglýsing -
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur haft þá reglu um áratugaskeið að heimsækja fanga á Litla-Hrauni á jólunum og gleðja þá með söng og hljóðfæraslætti. Þessi jólin varð ekki af heimsókninni vegna þess að Bubbi veiktist.
Hann var með stíft tónleikahald í desember og eftir þorláksmessutónleikana var hann orðinn veikur. Hann komst því ekki á Hraunið til að gleðja þá sem þar eru innilokaðir en tók fram að hann myndi mæta þegar hann yrði hress. Bubbi gladdi svo fanga með því að gefa þeim streymi að þorláksmessutónleikum sínum …