Þóra Hreinsdóttir, þáverandi nemandi Jóns Baldvins Hannibalssonar í Hagaskóla, hélt ítarlega dagbók um samskipti sín við kennarann þegar hún var 15 ára en hann rúmlega þrítugur. Dagbókin lýsir óeðlilegu sambandi nemandans og kennarans og að hún var heltekin af kennara sínum. Stundin birti dagbókina í forsíðugrein. Jón Baldvin afþakkaði að svara efnislega fyrir það sem fram kemur en sór af sér misnotkun og sakaði Stundina um „mannorðsþjófnað“ og telur umfjöllunina vera innlegg í svokallað rassastrokumál sem tekið verður fyrir í Landsdómi á næstunni. Þóra lést fyrir sex árum eftir að hafa átt í harðri glínu við Bakkus. Dóttir hennar, Valgerður Þorsteinsdóttir fann dagbók móður sinnar og kom henni á framfæri við Stundina sem sannreyndi að bókin er raunverlega Þóru …