Dagur B. Eggertsson borgarstjóri á að baki farsælan feril innan borgarstjórnar sem borgarstjóri og næstráðandi. Helst styrkur hans er að gera stefnt saman ólíkum flokkum og fólki og fengið alla til að ganga í takt. En nú er orðin breyting á og dagur virðist vera kominn á endastöð á þessum vettvangi. Þetta kom glöggt í ljós þegar hann svaraði Sigurjóni M. Egilssyni á Miðjunni, varðandi þingframboð. Svörin voru í véfréttastíl. Hann horfir til himins og hugsar sitt.
Tímamótin verða þegar Einar Þorsteinsson sest í borgarstjórastólinn og Dagur verður næstráðandi líkt og þegar hann gerði Jón Gnarr að borgarstjóra og sat sjálfur í aftursætinu. Fastlega er búist við að Dagur taki slaginn í komandi þingkosningum við hlið Kristrúnar Frostadóttur. Framboð hans mun styrkja Samfylkingu enn frekar og tryggja að sigur flokksins verði stór. Þegar kemur til stjórnarmyndunar er Dagur til staðar með sinn breiða faðm sem rúmar Pírata, Framsóknarmenn, Vinstri græna og jafnvel Sósíalista ….