- Auglýsing -
Auglýsing Vilborgar Bjarkar Hjaltested, auðkonu frá Vatnsenda, í Morgunblaðinu um skaða af bólusetningum hefur valdið fjölmiðlinum skaða. Það er Davíð Oddsson, ritstjóri í skjóli annarar auðkonu, Guðbjargar Matthíasdóttur aðaleiganda blaðsins, sem ber ábyrgð á auglýsingunni sem gjarnan er skilgreind sem falsauglýsing. Almenn fordæming skall á Mogganum eftir birtinginguna og í framhaldinu urðu þau undur og stórmerki að ábyrgðarmaðurinn Davíð baðst afsökunar sem varla hefur gerst áður …