Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, dregur fátt undan í nýrri bók, Þjóðin og valdið, sem byggð er á dagbókum hans og þá sérstaklega færslum í kringum átökin um fjölmiðlafrumvarpið og Icesave.
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Moggans, færi slæma útreið í bókinni. Hann er meðal annars sakaður um það í dagbókunum að hafa látið njósna um Dorrit Moussaieff, seinni eiginkonu Ólafs Ragnars. Skýringin á þeirri framgöngu Davíðs mun vera sú að hann hafi lagt ofurkapp á það að sýna fram á að Dorritt væri ennþá gift öðrum manni og því sek um tvíkvæni. Fleiri dæmi í bókinni lýsa hamslausri heift Davíðs og hatri í garð óvina sinna. Ólafur Ragnar taldi hann haga sér eins og einræðisherra.
Athygli vekur að Davíð situr þögull undir pilsfaldi Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda Moggans, og svarar í engu ávirðingum Ólafs Ragnars. Ekkert heyrist úr Hádegismóum, sem er óvenjulegt þar sem orðhákurinn Davíð á í hlut …