- Auglýsing -
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, þykir á köflum vera bæði óvæginn og fyndinn. Þessu hefur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fengið að finna fyrir svo undan svíður. Davíð hefur haft sérstaklega gaman að því að velta Bjarna upp úr ríkidæmi fjölskyldu sinnar, Engeyinganna.
„Ættarvitar fara illa í sólgosum og í nálægð segulmagnaðra manna,“ skrifaði Davíð í Reykjavíkurbréfi þegar Bjarni var að hans mati áttavilltur. Ragnar Önundarson, fyrrverandi forstjóri rifjaði upp á Facebook alræmt Reykjavíkurbréf Davíðs þar sem hann hraunaði yfir ættarlaukinn Bjarna og undirstrikaði gæfu og hæfni fyrri formanna. Þá fær Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra, á baukinn fyrir að fylgja Bjarna að málum. „Halldór Blöndal gat stundum forðum tíð haft áttavita sem mátti hafa hliðsjón af. En hann ratar illa eftir að notkunin á ættarvitanum óx. Og lendir þá í hverri hafvillunni af annarri …“. Davíð klykkir út með því að ættarvitar hafi aldrei náð nokkurri átt …