Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, er sökuð um að hafa „logið blákalt“ á borgarstjórnarfundi þegar hún sagði að borgin hefði fundað með Samtökum iðnaðarins um 10 milljarða króna rafræna umbreytingu borgarinnar. Mogginn fullyrðir þetta í uppsláttargrein og vitnar svo til Sigurðar Hannessonar,
framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, sem þolanda í meintu lygamáli borgarfulltrúans. „Fyrsta lygin er sú að fundur hafi átt sér stað. Í öðru lagi er logið til um efni slíks fundar og í þriðja lagi er logið til um niðurstöðu á slíkum fundi,“ segir Sigurður Hannesson. Nokkuð ljóst er að miðað við það rými sem fréttin fær þá er ekki mikið að frétta í samfélaginu. Mogginn virðist ekki hafa reynt að fá viðbrögð Dóru Bjartar við hinum grafalvarlegu ávirðingum. Umræddur Sigurður er sonur Agnesar Sigurðardóttur biskups og alinn upp við kristileg gildi …