Stjórnmálaflokkarnir eru byrjaðir að auglýsa sig fyrir þingkosningarnar 30. nóvember og fyrir stuttu síðan ákvað Framsóknarflokkurinn að birta auglýsingu á samfélagsmiðlum. Sigurður Ingi Jóhannesson, ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, reynir í henni að höfða til almennings en sumum auglýsingin þykir nokkuð furðuleg.
Í auglýsingunni er Sigurður sést skrifa bréf til Framsóknarfólks og talar leiðtoginn yfir alla auglýsinguna líkt og hann sé að lesa bréfið. Sigurði er margt til lista lagt en tala inn á auglýsingar er ekki hans sterkasta hlið og sýnir formaðurinn engar tilfinningar í lestrinum. Þá er hann sýndur í sjálfstæðisblárri skyrtu og í nánast litlausum heimi þar sem er þungskýjað og laufblöðin fallin. Undir er svo spiluð harmþrungin tónlist.
Auglýsingin gengur nú á milli manna í kvikmynda- og auglýsingageiranum þar sem sagt er að hún líkist lítið framboðsauglýsingu en minni fremur á auglýsingu fyrir hádramatíska kvikmynd sem endi á jarðarför formannsins …