Einar Þorsteinsson, leiðtogi Framsóknar, stendur á krossgötum hvað meirihlutaviðræður varðar. Talið er að hann eigi samleið með Sjálfstæðisflokknum og vísað til þess að hann hafi íhugað að leiða lista Sjálfstæðismanna í Kópavogi áður en hann lét heillast af Framsókn. Vandinn Einars er sá að borgarstjórnarflokkur Hildar Björnsdóttur er ósamstæður og þekkt að hver höndin er upp á móti annarri. Hildur glímir við það að vera ekki leiðtogi sem sameinar. Fyrir Framsóknarmenn er það ekki fýsilegur kostur að ganga inn í þannig samstarf sem þyrfti ríflegan meirihluta til að standa af sér innri ágreining.
Einar er frekar áttavilltur, enn sem komið er, en hugur margra innan Framsóknar stendur til þess að mynda meirihluta til vinstri og ná borgarstjórastólnum, þótt það yrði aðeins hluta úr kjörtímabilinu. Þá er sá möguleiki til staðar að fara leið Gunnars Thoroddsen og hluti borgarstjórnar Sjálfstæðisflokksins gangi til samninga við Einar og fleiri ….