Jarðvísindamaðurinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Ari Trausti Guðmundsson, upplýsti fyrir nokkrum árum um þá hættu sem er á eldsumbrotum við Grindavík og í Svartsengi.Þetta kom fram í viðtali við hann í Víkurfréttum fyrir rúmum 10 árum.
„… Hins vegar er líka goshætta við Grindavík og þar geta hraun runnið yfir byggð. Á sama hátt geta hraun ógnað orkuverinu í Svartsengi og eldsumbrot geta einnig ógnað Reykjanesvirkjun. Í ljósi sögunnar er það einnig staðreynd að gos á þessu svæði verða í hrinum sem geta staðið með hléum í jafnvel 30 ár …,“ sagði Ari Trausti.
Svo virðist sem stjórnvöld hafi ekki hlustað á málflutning vísindamannsins. Nú er skyndilega stokkið upp til handa og fóta við að setja skatt á alla landsmenn til að tryggja varnir þeirra mannvirkja sem Ari Trausti vísaði til. Í miðri jarðskjálftahrinu er byrjað í fáti að byggja varnargarða við Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi á kostnað almennings án þess að nokkur maður hafi hugmynd um það hvar gos komi upp. Menn hefðu betur hlustað á Ara Trausta og gripið tímanlega og yfirvegað til ráðstafana …