Einn seinheppnasti stjórnmálamaður Íslands er Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem skrifaði hrokafulla grein um Gísla Martein Baldursson, sjónvarpsmann og umhverfissinna. Marta uppnefndi Gísla Martein sem pjakk og prinsessu og talaði niður til hans. Greinin vakti bæði furðu og fordæmingu innan Sjálfstæðisflokksins sem utan. Samherjar Mörtu innan borgarstjórnar snupruðu hana. Gísli Marteinn er einn helsti talsmaður heilbrigðs lífsmáta innan flokksins og sérlegur talsmaður fyrir bíllausum lífsstíl sem sumum þar á bæ þykir hallærislegur. Því er spáð að Marta sé með þessu að marka sín pólitísku endalok og henni verði fleygt út úr borgarstjórn að ári. Maður sparkar ekki í Gísla Martein að gamni sínu …