Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er ófeiminn við að láta í ljósi skoðanir sínar á málefnum sem mönnum. Í færslu á Facebook lýsti hann áhyggjum sínum af því að enskan er smám saman að yfirtaka íslenskuna á veitingahúsum, sjúkrahúsum og elliheimilum. Bubbi, sem er kominn nokkuð við aldur, hefur áhyggjur af því að ef hann lendi á elliheimili muni móðurmálið ekki duga til þess að tjá sig. Stærstur hluti starfsliðsins tali aðeins ensku og skilningur á milli þess og skjólstæðinga takmarkaður.
„Íslenskan er að hverfa,“ skrifar Bubbi og vill ekki að sitt elliheimili verði með þeim ósköpum að fólk á leiðarenda nái ekki að tjá sig með eðlilegum hætti. Hann telur augljóst að eitthvað „hræðilegt“ í anda hamfara hafi gerst. Bubbi hefur svo sannarlega lög að mæla í þessum efnum og verðugt verkefni að snúa við þessari óheillaþróun þar sem Íslendingare eru neyddir til að tala erlendum tungum í sínu eigin landi …