Öll spjót standa nú á Degi Eggertssyni borgarstjóra og meirihluta hans í Reykjavík. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer bókstaflega hamförum. Sum þeirra mála sem hún hefur reist hafa reynst innihaldsrýr og hálfgerð vindhögg. Önnur eru stærri og koma illa við meirihlutann. Þeirra á meðal er að Reykjavíkurborg leggur langt á annað hundrað milljónir króna í nokkurn fjölda blaðafulltrúa sem eru þannig á hverju strái. Athyglisvert er að Borgin heldur úti áróðursliði sem kostar á við sæmilegan fjölmiðil á frjálsum markaði. Fremstur þeirra er Bjarni Brynjólfsson, fyrrverandi ritstjóri Séð og heyrt, sem hefur það markmið að móast við í málum sem koma illa við meirihlutann. Þar ber hæst Braggamálið fræga með fokdýrum, innfluttum puntstráum. Víst er að ef Sjálfstæðismenn og Miðflokkur komast til áhrifa þá verða hreinsanir á upplýsingasviði Reykjavíkurborgar …