Kosningabaráttan er farin á fulla ferð og keppast stjórnmálamenn þjóðarinnar um að komast í viðtöl í fjölmiðlum til að klappa sjálfum sér á bakið og setja út á aðra flokka.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ákvað að fara nokkuð óhefðbundna leið í hlaðvarpsviðtali hjá Frosta Logasyni og lýsti hversu erfitt hún hafi haft það sem dómsmálaráðherra frá 2019 til 2021.
Sagði hún sögu af því þegar maður öskraði á hana inn á kaffihúsi og að sami maður hafi reynt að hrækja á hana þegar hún var úti að skokka. Þá voru einnig stjórnmálamenn í öðrum flokkum vondir við hana.
Það verður að teljast áhugavert að aumingja Áslaug Arna sé að mála sig upp sem fórnarlamb í ljósi þess að hún vísaði meðal annars kasóléttri konu úr landi gegn læknisráði. Óléttu konunni hafði verið sagt að Ísland væri land tækifæranna …