- Auglýsing -
Þáttastjórnandinn Egill Helgason á góða spretti á köflum þótt árin færist yfir. Í Kiljunni í gærkvöld var viðtal við lögmanninn, bóndann og rithöfundinn Fanney Hrund Hilmarsdóttur sem skrifar bækur og stundar búskap jöfnum höndum. Tilefni viðtalsins er ný bók Fanneyjar, Fríríkið. Svo vel fór á með henni og Agli að Fanney lét í ljós þá frómu ósk að fá að nefna hrút í hausinn á Agli. Hann sagði það mikinn heiður og var hinn ánægðasti. Þá baðst bóndinn afsökunar á því að þurfa að gelda hrútinn í vetur. Egill var snöggur til svars og sagði það ekkert gera til. „Ég er hvort sem er orðinn svo gamall,“ sagði hann …