- Auglýsing -
Það gladdi marga þegar fjölmiðlafólkið Gísli Marteinn Baldursson og Björg Magnúsdóttir dúkkuðu upp á Rás 2 um Verslunarmannahelgina. Útvarpsparið naut mikilla vindælda með þátt sinn á laugardagsmorgnum. Af óskiljanlegum ástæðum var þátturinn sleginn af og ofurparið þagnaði. En nú hafa vonir vaknað um að Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og undirsátar hans hafi séð ljósið og muni ráða þau aftur til að gleðja landsmenn með reglubundum hætti. Hvorugt þeirra er reyndar á hungurmörkum þar sem þau hafa næg verkefni í sjónvarpshluta Ríkisútvarpsins …