- Auglýsing -
Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður er ekki af baki dottinn þar sem smásala er annars vegar. Hann er með undirtökin í eigendahópi Skeljungs og er þar stjórnarformaður. Nú heyrist af honum í verslanageiranum. Skeljungur er kominn með undirtökin í netverslanakeðjunni Heimkaup og þar glittir í Jón Ásgeir. Hermt er að stjórnarformaðurinn sýni netbúðinni mikinn áhuga. Víst er að reynsla hans frá árunum með Bónus eigi eftir að nýtast vel og Heimkaup fái mikinn vind í seglin …