Kapphlaupið um Bessastaði hefur harðnað og tekið á sig nýja mynd. Halla Hrund Logadóttir ber sem fyrr höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur með 26 prósenta fylgi á bak við sig. Næst kemur Katrín Jakobsdóttir með 19,6 prósent. Í nýrri könnun Prósents kemur í ljós að Halla Tómasdóttir hefur aukið fylgi sitt og er nú komin í 12 prósenta fylgi. Þar með er hún mætt í toppslaginn, rétt eins og þegar Guðni Th. Jóhannesson, núverandi forseti, lagði hana naumlega á sínum tíma. Flestir spá því nú að Halla Hrund muni sigra í slagnum.
Það er á brattann að sækja hjá Jóni Gnarr sem er með tæplega 14 prósenta fylgi. Jón er þó ekkert á buxunum að gefast upp. Á framboðsfundi sínum á Akureyri átti hann frábært útspil sem Samstöðin endurómaði. „Kjósið mig – ég grátbið ykkur,“ sagði Jón og uppskar góð viðbrögð …