Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir ástandið hvað varðar áform um byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal vera hlægilegt og einkennist af kosningabrellum. Þar vísar hún til þess að enn ein viljayfirlýsingin hafi verið undirrituð varðandi þjóðarleikvanginn hafi verið undirrituð í aðdraganda kosninga. Hildur segir í Mogganum að þetta sé „grímulaus kosningabrella“ og stöðugt verið að klippa borða og undirrita viljayfirlýsingar án þess að framkvæmdir sem áætlað er að ljúki innan fjögurra ára séu hafnar.
Harðorðar yfirlýsingar Hildar eru ekki síst merkilegar í því ljósi að um er að ræða samstarfsverkefni ríkisstjórnar og borgarstjórnar. Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar talar Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og leiðtogi Hildar, fyrir verkefninu. Þannig verður ekki annað séð en að leiðtoginn í Reykjavík sé að snupra foringja sinn og fordæma sleifarlag flokksins.
Yfirlýsingar Hilar verður að skoða í því ljósi að Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er með fylgi sem framkallar neyðarástand. Flokkurinn hefur mælst vera sá fimmti stærsti í Reykjavík. Vandinn er sá að þetta útspil felur í sér árás inn á við í flokknum. Þetta er enn eitt dæmið um að sjálfstæðismenn rísa nú hver af öðrum gegn foringjanum. Hildur er grjóthörð og hlífir engum …