- Auglýsing -
Leikkonan vinsæla, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, fer ótroðnar slóðir í lífinu. Hún á að baki fjölda leiksigra en tók síðan U-beygju. Hún starfar nú sem kúabóndi og hallar sér að ásatrú. Á dögunum var hún vígð sem goði í Ásatrúarfélaginu.
Hún segir frá lífshlaupi sínu í einlægu viðtali í Heimildinni. Þar lýsir hún þeim mikla harmi sem fylgdi því þegar hún gekk með stúlkubarn fyrir samkynhneigða vini sína. Í fyrstu hafði hún umgengnisrétt en var svo bannað að hitta stúlkuna.
Í viðtalinu lýsir hún baráttu sinni, sorgum og sigrum af einlægni …