Næsta mál á dagskrá ríkisstjórnarflokkanna er að velja í ráðherrastóla og aðrar vegtyllur. Lilja Alfreðsdóttir er hársbreidd frá því að verða utanríkisráðherra á vængjum kosningasigurs Framsóknarflokksins. Guðlaugur Þór Þórðarson yrði þá kominn á laust og spurning um framhaldið. Guðlaugur Þór vann stórsigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins og er því í raun sá sem Bjarni Benediktsson formaður hefur ekki afl til að niðurlægja. Blautur draumur Bjarna og félaga gæti verið sá að Guðlaugur yrði forseti Alþingis og þannig kominn á beinu brautina út af þingi. En það mun líklega ekki verða samþykkt. Ef um það semst að utnaríkisráðuneytið falli í hlut Framsóknarflokksins þá mun Guðlaugur geta valið það ráðuneyti sjálfstæðismanna sem honum sýnist nema auðvitað ekki fjármálaráðuneyti foringjans. Dómsmálaráðuneytið er í samhenginu heit kartafla. Það er spennandi uppgjör framundan …